Það er alveg ótrúlegt hvernig tíminn líður. Ég er orðin 21 árs
og eftir tæpt hálft ár verð ég 22 ára skass.. jahá ætli það sé ekki
tími kominn til að koma sjálfri sér í skuldir og taka bankalán
fyrir hinu og þessu til að standa aðeins undir efnishyggjunni.. og
plana barneignir og nöfn og svona.. Allavega hefur ingibjörg valið
nafn á barnið mitt í framtíðinni og það mun vera Pálína.. 
Neinei ekki alveg á næstunni.. ætla skella nokkrum færslum
hingað inn í viðbót áður en ég fer að ganga eitthvað lengra í að
gera sjálfa mig fullorðna. Kannski maður fari eftir dæmi frá Hlyni
um að gerast sjálfboðaliði í Suður-Ameríku... aldrei að vita

En eins og flest ykkar vita þá er hún Helga á Jamaica með Helga,
Jóa og fleirum. Ég dauðöfunda þau, það er víst yfir 30 stiga hiti
þar núna. Það er þó pottþétt að þar er örugglega 50 gráðum heitara
heldur en hérna heima. Get bara ekki beðið þangað til prófin
klárast svo ég geti farið að hugsa út í einhver ferðalög..
mmmm..
Versta fyrir mig er þessi fóbía fyrir geitungum og vespum.. ég er
svo hrædd við þetta að ég get hreinlega ekki lifað nálægt þessu.
Var í dálitlum vandræðum í Tyrklandi þegar þessar flugur vildu
endilega sækjast í mig.. Bar á mig eitthvað efni úr úðabrúsa sem
átti að fæla moskítóflugur í burtu og vonaði að það mundi fæla þær
líka, komst svo að því að efnið væri eldfimt og átti víst ekki að
bera á húð.
Fékk bara örlítið exem og þetta er horfið núna sem
betur fer
Þar sem mig langar svo mikið að fara í regn- og
frumskóga þá verð ég virkilega að gera eitthvað til þess að losna
við þessa hræðslu! 
..og vitiði svo hvað.. míns er bara að fara útskrifast um
jólin.. vibbííí.. Kannski dáldi of mikið að vera að segja þetta
hérna og svo fell ég í einhverju og næ ekki að útskrifast.. það
verður bara að hafa það
Eina fagið sem ég er í vandræðum með er
stæ 503 svo ég þægi alla aðstoð sem býðst ef einhver er til. 
Ætli mar stefni svo ekki bara á svakaparty ef ég næ að klára
þetta.. þá skal sko vera skyldumæting.. og ALLIR með bjór!
Við Elvar kíktum í bíó á laugardaginn á Borat.. og vá hvað þetta
er fyndin mynd.. ætlaði aldrei að hætta að hlægja!! Mæli með svoo
henni 
Ætla að ljúka þessu bloggi einhvernvegin..

Ingibjörg orðin frekar þreytt á kallaleysinu og
ákvað að redda málunum, minnti að hann var kallaður
Jens.

Mér finnst þetta svo fyndin mynd.. veit varla ennþá
hvað þær voru eiginlega að gera? Hehe sjáið svipinn á imbusi (ath.
búið að innbyrða ágætismagn af alkóhóli)

Loki sæti voffinn minn ofsakátur..

Sylvía, Unnur og ég.. eitthvað djamm fyrir löngu síðan.. AKKURU
djömmum við aldrei saman??

Varð að skella eina dónómynd af okkur klessuparinu híhí hjá
RISAstóra fossinum hahaha

HEHEHEHE var að finna þessa í tölvunni.. Þetta var svona hrista
haus og taka mynd.. Þetta er ÓGEÐSLEGT!! haha Held barasta að ég sé
snillingur í þessu.. (það voru nokkrar miklu verri en þessi.. læt
þær sko ekki hingað inn
)
En við Bjössi vorum að pæla í
hitting fljótlega.. eftir prófin, nema hvað að hann verður ekki
búinn fyrr en 19 des..
Jæja.. fara að hjálpa systu að
hafa sig til fyrir ball.. litla krúttið komin í níunda bekk og er
að fara á BALL..
En en ENDILEGA látið heyra í ykkur
og verið duleg að kommenta hehe 
-Hrafnhildur